Skór með hanakambi! að mínu mati svölustu skór sem gerðir hafa verið en tískuhúsið Yves Saint Laurent á heiðurinn að þessum djörfu skóm.
Þá er hægt að fá í netversluninni Net-a-porter.
Ég fer reglulega á þessa síðu og versla í huganum allar dásemdirnar sem þar fást. Þó maður gráti verðin á designerflíkunum þá huggar maður sig við að verslanir eins og HM og Zara ásamt fleirum verða fljótar að grípa helstu trendin og framleiða á viðráðanlegum verðum.
Ég tók saman brot af því besta fyrir haustið:
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.