Heitustu trendin í haustförðun liggja fyrir, og hér kemur ennþá betri samantekt á litum og vörum sem allar konur og stelpur ættu að eiga eitthvað af í snyrtibuddunni í haust!
1. Berjalitaður “Vampy” varalitur
Allt frá brúnum út í plómulitaðan og nánast svartan. Passaðu að eiga varablýant í stíl við litinn þar sem að þetta útlit krefst nákvæmni. Ekki er verra að bera kremaða liti á með stífum bursta fyrir sem flottasta útkomu.
2. Svartur “diskó” augnskuggi
Með glimmeri eða sanseringu er málið. Prófaðu “smokey” útlit með því að setja svartan blýant fyrst á efri og neðri augnlýnu, fara svo yfir með augnskugganum og dreifa vel úr. Hér má sjá færslu um smokey förðun.
3. Rauðleitar kinnar
Auðvitað ekki eldrauðar, en það má nota mun meira af kinnalit en áður. Ef þér finnst þú hafa sett of mikið, taktu þá einfaldlega meikbursta með örlitlum farða og dragðu úr litnum.
4. Svartur eyeliner
Dramatísk kattaraugu eru mjög áberandi í haust og það er um að gera að taka fram kolsvartan eyeliner, maskara og jafnvel augnskugga með ef þú ert að fara út á lífið. Mundu þó að hafa eyrnapinna við hendina til að lagfæra förðunina ef þú gerir mistök.
5. “Mauve” gráleitur augnskuggi
Gráfjólubláan tón, eða plómulitaðan, er hægt að fá bæði í augnskuggum og varalitum og verður hann áberandi. Liturinn fer flestum og hentar sérstaklega vel bláeygum.
6. Dimmgrænir og gylltir í bland
Um daginn birtist grein um að það væri mál málanna í haust að nota marga liti í bland á augnsvæðinu. Með þeim heitustu verða grænir og gylltir tónar.
Höfum gaman af tískunni og prófum okkur áfram!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com