Þrátt fyrir að vera aðeins tveggja ára er Harper Seven dóttir Victoriu og Davids Beckham eitt frægasta barnið í heiminum í dag.
Litla daman mætti ásamt pabba sínum á tískusýningu Victoriu á tískuvikunni í New York til þess að styðja við bakið á mömmu sinni. Harper var klædd í sætan hvítan kjól frá Chloé, með snúð í hárinu og hálsmen. Mamman hefur örugglega stíliserað litlu skvísuna sína fyrir tískusýninguna og passað uppá að hún væri í þægilegum fötum.
Það var engin önnur en ritstjóri Vogue, Anna Wintour, sem sat við hliðina á Harper og David og það var ekki annað að sjá en að Harper léti Önnu brosa. Anna er nefninlega ekki þekkt fyrir að brosa fyrir hvern sem er – Hvað þá tala við hvern sem er!
Victoria hefur undirbúið þessa tískusýningu mjög lengi og lagt mikla vinnu í hönnunina en hún var afar stressuð eins og alltaf áður en tískusýningin hófst og birtist síðan í nokkrar sekúndur eftir að henni lauk. Blaðamenn náðu varla mynd af henni hún var svo snögg að þakka fyrir sig. Örugglega í spennufalli.
Þegar raðað var í sæti fyrir sýninguna sá Victoria til þess að Harper fengi að sjálfsögðu sæti fremst og var sætið hennar sérmerkt með hjarta frá mömmu.
Sumir höfðu áhyggjur af að SjöHarpan fengi meiri athygli en sjálf sýningin en þegar fyrirsæturnar mættu á pallinn drógst athyglin öll að hönnuninni. Gagnrýnendur voru nokkuð ánægðir með línuna en Hér getur þú skoðað fatnaðinn úr vor og sumarlínu Victoriu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig