Það virðist sem fléttur í hárið séu algjörlega trendið í dag og tískupallarnir hafa sýnt að flétturnar halda áfram að vera heitar, að minnsta kosti fram á næsta vetur.
Enda eru fléttur meira en bara fléttur, það er hægt að gera ýmislegt skemmtileg með þær, hvort sem þú ert að fara út á lífið, eða í hversdagslegum erindagjörðum.
Fléttur eru þægileg hárgreiðsla en jafnframt líka krúttlegar.
Á myndbandinu eru settar litaðar hárlengingar fyrir myndatöku mér finnst þetta koma bara nokkuð skemmtilega út. Það er greinilegt að vinsældir fléttutrendsins á ekkert eftir að dvína.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.