Það er nokkuð síðan stutta hárið hefur verið sjóðandi heitt en segja má að það sé aðeins að koma á eftir bob klippingunni sem hefur verið mjög vinsæl upp á síðkastið.
Margar dömur hafa þá látið síðu lokkana fjúka fyrir bob og svo stigið skrefinu lengra og látið klippa á sig drengjakoll. Stuttar klippingar hafa alltaf átt sinn tíma, meðal annars á 60’s árunum þegar Twiggy var súperstjarna og eins á 80’s árunum þegar aðal gellurnar voru með aflitaðan drengjakoll að hætti Annie Lennox.
Hér er myndagallerí sem sýnir nokkrar af heitustu stjörnum Hollywood sporta stuttu hári. Hvernig heldurðu að þetta myndi klæða þig? Þorirðu?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.