Um daginn fjallaði hún Margrét um æðislegan myndaþátt þar sem pastel-litað hár var í aðalhlutverki. Svo núna nýlega rakst ég á þennan myndaþátt sem fjallar einmitt líka um pastel-liti…
Þarna eru tvær hressar samankomnar til að lita á sér hárið og útkoman er pastel-bleikt og lavender fjólublátt hár. Mjög sérstakt en flott samt sem áður! Það var ljósmyndarinn Jamie Nelson sem tók þessar myndir fyrir Mexíkóska Elle.
Pastel og aftur pastel!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.