Stjörnurnar í glysborginni eru svo sannarlega með puttann á púlsinum þegar kemur að nýjustu tískutrendum.
Eitt heitasta trendið undanfarið hefur verið svokölluð ,,Pixie” klipping. Ég ákvað að henda mér í djúpu laugina og klippti mig þannig í byrjun sumars. Ég er nokkuð sátt við útkomuna þó að mig langi stundum að hafa síða hárið og ná í smá tagl. Það er þó alltaf hægt að leika sér með toppinn og ég hef verið að prufa ýmsa snúninga, snúða og fléttur á toppnum mínum í sumar sem er bara skemmtilegt og poppar lúkkið aðeins upp.
Það var varla hægt að opna netmiðil þegar dívan sjáf Beyoncé ákvað að gefa hár sitt til góðgerðamála og klippti sig ofurstutt. Söngkonan hefur þó ekki póstað neinum myndum eftir að hún setti inn myndirnar af stutta hárinu en ég hef verið að sitja um Instagram síðu söngkonunnar með von um fleiri myndir af hárinu.
Hér að neðan getur þú séð sætar skvísur með stutt hár-ég mana þig að prufa!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig