Label – M vörurnar eru nýjung hérlendis en þessar vörur eru hreint út sagt snilld!Toni and Guy nota erlendis og unnu mikið að því að hafa vörurnar góðar og að þær myndu virka vel!
Label – M vörurnar eru unnar í samstarfi fagfólks í hárgeiranum með hjálp vísindamanna og efnafræðinga sem komu með hina fullkomnu blöndur.
Ein af mínum uppáhalds vörum frá þeim heitir Curl Cream og er fyrir krullað, liðað hár til að kalla fram fallega liði og móta.
NOTKUN
- Sett i rakt hárið – gott að klípa í hárið.
- Gott er að láta það þorna nátturulega eða nota dreyfara sem ýkjir liðina/krullurnar meira.
- Hægt er að skella yfir þurrt hárið til að fínisera ef þér finnst þörf á.
- Varan inniheldur jojoba, hafra og sólblómaolíu sem gerir krullurnar/liðina. mjúka og nátturulega og heldur hárinu saman.
- Curl cream inniheldur einnig hitavörn og vörn gegn útfjólubláum geislum.
Katrín/Kata er hárstnyrtir og eigandi stofunnar Sprey í Mosfellsbæ. Hún hefur unnið með fjölda ljósmyndara, komið fram í Vouge.com og séð um hár fyrir ýmis verkefni, tímarit og unnið til verðlauna hérlendis og erlendis! Kata er fagmanneskja fram i fingurgóma og alltaf tilbúin i spennandi verkefni – Nánari upplýsingar hjá Sprey 5176677 eða á katasprey@gmail.com