Flestar áhugakonur um hár og allt sem því viðkemur hafa væntanlega ratað inn á heimasíðuna Hárið.is sem varð til fyrir ári vegna ólæknandi áhuga á hárgreiðslum og fallegu hári.
Þar hægt að fá hugmyndir og leiðbeiningar um einfaldar og flóknar hárgreiðslur og fylgjast með hártískunni. Einnig má þar finna upplýsingar um hárvörur sem hársnyrtifólk notar og mælir með og hárgreiðslustofur sem henta þörfum hvers og eins.
Markmið síðunnar er að auðvelda fólki leitina að öllu tengdu hári með því að safna upplýsingunum á einn stað og Hárið.is er því fyrir alla sem hafa áhuga á hári, áhugafólk jafnt sem fagaðila.
1.desember opnaði svo netverslun á Hárið.is sem sérhæfir sig í að selja hárvörur sem hingað til hafa aðeins verið fáanlegar á hársnyrtistofum, hárvörur sem hársnyrtifólk notar og mælir með.
Flottar jólagjafir fyrir allar skvísur og herra líka, Frí heimsending og 14 daga skilafrestur. Þú getur skoðað úrvalið HÉR en við mælum sérstaklega með flottu krullujárnunum og t.d TOPPNUM fyrir þær sem langar að hafa topp af og til en vilja kannski ekki fara út í það að klippa hann alveg á sig.
Af þessu tilefni er líka sérstakt jóladagatal í gangi en daglega eru dregnir út heppnir vinningshafar og þú getur kíkt á það HÉR.
Við mælum með því að allar sannar hárgreiðsluáhugakonur og fagkonur kynni sér þessa frábæru síðu en þar er ógrynni af allskonar efni og upplýsingum.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.