Það getur gert svo ótrúlega mikið fyrir útlitið að setja smá skraut í hárið. Núna styttist í jólin og áramótin og hvaða tími er betri en sá til að skreyta sjálfa sig í bak og fyrir, meðal annars með því að setja eitthvað fínt í hárið?!
Eftirfarandi eru 40 myndir af flottum og frægum dömum sem hafa verið myndaðar með skraut í hárinu við hin ýmsu tilefni. Sumt er bara einfalt og nett, annað fyrirferðarmeira. Oft er það í úfnu hári og stundum vel greiddu. Hvernig sem útfærslan er þá kemur þetta rosalega vel út og um að gera að prófa sig áfram.
Gwen stefani með einfalt og smart hárband að hætti hippanna
Scarlet Johanson alltaf svo mikið ‘beauty’, hárið krullað í endana, túberað upp og fest með fallegum semelíusteinakambi.
Einfaldur leðurkjóll og einfalt hárskraut hjá Rooney Mara. Mjög í anda bresku mod tískunnar.
Elle Fanning með hárið upprúllað til hliðanna og flotta, skrautlega spöng yfir. Mátulega úfið og flott.
Rose Byrne með vel uppsett hárið að hætti Amy Winehouse og sæta litla slaufu til skrauts.
Paloma Faith með hárið í 40’s stíl, svolítið eins og sæt Honolulu dama í strápilsi.
Natalie Portman með hárband skreytt með steinum. Mjög sæt leið til að fá smá glamúr í hversdagsleikann.
Natalie Portman aftur við eitthvað flott tilefni, með kamb í hárinu uppsettu að aftan í frönskum stíl.
Milla Jovovich tekur hárið út á hlið og festir með fallegum kambi. Krullaðir endar. Flott greiðsla í millisítt hár.
Marion Cotillard: Stór snúður í mikið túberuðu hári, mjög 60’s-70’s legur stíll og flottur. Hárskrautið laust og afslappað sem gefur hárgreiðslunni fallegt yfirbragð.
Kirsten Stewart með mjög áberandi og flotta greiðslu, úfinn snúður í hnakkann vafinn teygjum. Mjög afslappað, töff og áberandi án þess að ‘æpa’ á þig.
Katy Perry er hálf brjáluð þegar kemur að hári en hún hefur örugglega prófað alla liti sem eru til á jörðinni í hárið á sér. Hér er hún með ótrúlega skemmtilegan kamb úr einhverskonar litríku plasti. Flott í bleika hárinu hennar.
Katy Perry öllu eðlilegri hér með dökkt hárið og í miklu 20’s stuði, kannski í Great Gatzby partýi?
Karolina Kurkova kannski aðeins að fara yfir strikið með þetta hér. Full mikið af pallíettum verðum við að segja.
Keira Knightley væri nú sæt í fjölskyldujólaboði með svona fínt í hárinu. Minnir aðeins á mistil teininn.
Karen Elson bæði kasjúal og sæt með klút í hárinu. Prófaðu þig áfram með það sem er til heima.
Kirsten Dunst sumarleg og sæt með blómahárband, litasamspilið fer litarafti hennar sérlega vel.
Jennifer Lawrence með óaðfinnanlega förðun og einstaklega fallega hárgreiðslu. We love this!
Jamie King: Þú getur sett þessa í hárið á þér og partýið getur byrjað strax, sama hvaða föt eru notuð við!
Julianne Hough með fullkomna greiðslu fyrir hversdagslífið. Svarta hárbandið sér til þess að allt haldist á sínum stað.
Florence Welch undir austurlenskum áhrifum með ótrúlega smart keðjuskraut í hárinu.
Emma Stone með hárið vafið upp í hnakkann. Einstaklega sæt útkoma og sérstaklega með þessari hringlaga spennu.
Diane Kruger er mikið eftirlæti okkar á Pjattinu enda klassadama sem lítur alltaf óaðfinnanlega vel út. Hér er hún með retro semelíuspennur í uppsettu hári.
Charlize Theron svo endalaust glæsileg með dásamlegt bling í hárinu. Þetta gerir lífið bara svo einfalt.
Christina Hendricks með hárskraut sem er alveg í stíl við kjólinn, – við erum ekki alveg vissar með þetta.
Chloe Grace Moretz svo jólaleg og sæt með semelíusteinaspennu í hárinu og fallega krullur.
Emliy Blunt
Sæta Sarah Jessica Parker að flippa í einhverju partýinu. Þetta væri heldur betur tilvalið um áramótin.
Mischa Barton er alltaf sama jóga, boho týpan og auðvitað er hún sæt með hárskraut að hætti indverskra draumadísa.
Dianna Argon með blómaskraut á svörtu satínbandi í hárinu. Ótrúlega smekklegt og flott.
Ekki ósvipað lúkk hér. Hárið kasjúal og svolítið úfið, bronsgyllt band í hárinu og svartur kjóll. Prinsessuleg og sæt.
Lana Del Ray svo veit alltaf hvað hún syngur þegar kemur að því að vera svolítið töff og sæt. Hér er hún með tvær eðlu spennur í hárinu sem er slegið og vandlega greitt.
Tískudívan okkar hún Diane Kruger með einskonar ‘ólympíu’ krans í hárinu. Ótrúlega smart!
Leighton Meester er bæði glam og flott í þessum kjól og með hárið fallega uppsett, aftur í mjög retró/ólympíustíl.
Sienna Miller er í anda Shabby Chic hérna, blómin í hárinu og litavalið mjög; Suðurríkin 1952. Æði!
Breska söngkonan Pixie Lott bara með einfalda hárspöng og hárið túberað upp aftan á hnakkann.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.