Mikið ofboðslega er gaman að sjá hvað stutta hárið er að koma mikið inn núna og dömurnar í Hollywood fylgja nýjustu tískustraumum, eða setja þá.
Ég er einnig mjög ánægð með að þessar dömur skuli ekki láta hárið sitt skilgreina sig eins og svo margar dömur gera. Sítt og slétt, helst niður fyrir rass og allar eins, það er ekkert gaman!
Fjölbreytileikinn er fallegur og skvísurnar hér fyrir neðan eru svo sannarlega sjúklega sætar með sitt stutta hár. Ég var sjálf með svona klippingu fyrir tæpu ári og ég viðurkenni að það tók smá tíma að venjast því að vera ekki lengur með sítt hár en ég fékk samt sem áður meira hrós heldur heldur en hitt frá fólkinu í kringum mig. Á móti lék ég mér líka svolítið meira með háralitinn og var meðal annars með grátt hár um tíma.
Kíktu á þessar skutlur hér fyrir neðan, kannski veita þær þér innblástur og hárið fær að fjúka.
Rihanna er algjört kamelljón þegar kemur að hárinu, hér er hún með sítt að aftan-töffari!
Julianne Hough er sjúklega já SJÚKLEGA sæt með nýju klippinguna sína.
Það kom öllum á óvart þegar Jennifer Lawrence klippti hárið sitt stutt og skvísan púllar þessa klippingu svo sannarlega.
Ofurfyrirsætan Coco Rocha sýnir það og sannar að maður þarf ekki að vera með sítt hár til að vera sjúklega sætur töffari.
Shailene Woodley klippti hárið sitt og gaf það síðan til góðgerðarmála.
Stutta hárið entist ekki lengi hjá Beyoncé, hún var komin með hárlengingar eftir nokkra daga.
Hin villta Miley Cyrus er mjög flott með stutta hárið sitt.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig