Pixie klippingin nýtur sífellt meiri vinsælda og ótrúlegustu gellur í Glysborginni eru farnar að klippa á sér hárið stutt.
Pamela Anderson er ein af þeim en ég var handviss um að hún væri með hárkollu og hefði ekki klippt lokkana heldur bara tekið hárlengingarnar úr sér. Daman lét vaða og ákvað að klippa sig stutt en henni fannst hárið á sér vera orðnar “gamlar fréttir” og vildi breyta til.
Aðrar leikkonur sem þurftu að klippa sig stutt fyrir kvikmyndahlutverk voru m.a. Natalie Portman og Charlize Theron en þær hafa svo haldið í drengjakollinn eftir að tökum lauk. Jennifer Lawrence er nýbúin að klippa hárið stutt og það er óhætt að segja að hún er algjör töffari með klippinguna.
Hér að neðan eru nokkar dömur með Pixie klippinguna. Myndir þú þora?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig