Oftar en ekki sjáum við Hollywood leikkonur eða söngkonur með fallegt og þykkt hár, dásamlegar greiðslur og hinn fullkomna háralit.
Það sem kemur samt kannski á óvart (eða ekki) er að þær eru með valið fólk í hverju horni sem sér um að þær líti sem best út þegar þær mæta á rauða dregilinn og í flestum tilvikum eru þær einnig með hárlengingar sem lengja eða þykka hárið.
Hér að neðan má sjá nokkrar flottar dömur og hárgreiðslur þeirra sem eru alltaf svo óskaplega fínar.
Taktu líka eftir að þessar konur eru alls ekki hræddar við að breyta til. Hvað með þig?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig