Þegar ég sé þessa óaðfinnanlegu herraklippingu fæ ég einhverja rómantíska fortíðarþrá alveg til stríðsáranna!
Hugsanlega er það vegna þess að þessi klipping var móðins á stíðsárunum þar sem hermennirnir skörtuðu henni og heilluðu dömurnar algjörlega upp úr skónum. Margir karlmenn á Íslandi (og um heim allan) hafa borið þessa klippingu og selebbarnir í Hollywood eru að sjálfsögðu margir með hana.
Það virðist ekkert lát vera á vinsældum þessarar klippingar en hún krefst lítils viðhalds eftir að herrann er nýklipptur. Bara slatti af geli eða öðru góðu hárdúlleríi í hárið gerir hana ennþá gómsætari.
Hér eru nokkrir sætir og töff
Gianluca Di Sotto
Jack Gallowtree
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig