Hefurðu einhverntíma lent í því að hitta vinkonu þína, vinnufélaga eða kunningjakonu með ótrúlega flotta greiðslu og velt því fyrir þér hvernig hún fór eiginlega að þessu?
Við erum alltaf að spá í hvernig við getum græjað hárið á okkur þannig að það virki náttúrulegt og fallegt og án þess að það taki einhvern hrikalega langan tíma.
Fléttur eru í raun ótrúlega einföld leið til að gera fallegar greiðslur í sítt hár og stundum taka þær alls ekki langan tíma. Sérstaklega ekki ef þú ert vön að gera þær.
Hér eru 18 hugmyndir að fléttum sem segja sig svolítið sjálfar. Þú getur fundið hvernig maður á að gera þessar fléttur til dæmis með því að slá inn leitarorðin “fiskiflétta” eða “fléttur” hér á Pjatt.is og við lofum að það koma upp nokkur myndbönd sem kenna þér tækina. Svo er bara að æfa sig í smá tíma og áður en þú veist af getur þú vippað upp dásamlegra sexý og sætri greiðslu án neinnar fyrirhafnar.
Þetta snýst nefninlega aðallega bara um hugmyndaflug og útfærslur.
[heimild: stylist.com]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.