Fylgdu þessum 10 einföldu skrefum til að fá geggjaðar Kim Kardashian krullur 🙂
1. Þvoðu hárið með shampó og hárnæringu eins og vanalega.
2. Skiptu hárinu áður en þú byrjar að þurrka það.
3. Skiptingin er ekki bein heldur smá bogin.
4. Settu hitavörn í blautt hárið t.d. Trevor Sorbie Beautifully straightened heat defence blow dry spray og þurrkaðu þar til um 90% þurrt.
5. Notaðu svo stóra blástursbursta til að fá lyftingu í hárið og blástu það slétt.
6. Notaðu gott sléttujárn, t.d. Babyliss Pro, til að slétta hárið frá rót til enda í einni hreyfingu.
7. Því næst krullar þú hárið. Settu endann á hárinu í krullujárnið og snúðu upp eins langt og þú vilt að krullurnar nái.
8. Spenntu upp krullurnar og leyfðu þeim að kólna.
9. Eftir 10 mínútur er gott að bursta í gegnum hárið til að fá bylgjurnar í gegn.
10. Spreytið með góðu en léttu hárspreyi, t.d. Trevor Sorbie beautiful volume harispray.
VOILA! Þú ert komin með glamúrus Hollywood krullur að hætti Kim Kardashian!
Viltu meira? Þá geturðu skoðað fleiri flottar greiðslur og kennslumyndbönd á Facebook síðunni Hárið.is
Ég heiti Edda og stofnaði Hárið.is þar sem ég hef ólæknandi áhuga á hári og hárgreiðslum. Takk fyrir að kíkja á pistlana mína hér á Pjatt.is en ef þú vilt meira er bara að kíkja á fb síðuna Hárið.is