Er kominn tími til að breyta aðeins til og fá sér nýjan hárlit eða klippingu?
Ef svo er þá bara go for it! Hárið vex aftur og þú getur smellt í nýjan lit eftir nokkrar vikur ef þú ert óánægð. Stjörnurnar í Hollywood eru flestar óhræddar við að lita hárið sitt í öllum regnbogans litum eða klippa hárið en þær eru reyndar líka með hársnillinga sem geta skellt hárlenginum í þær á núll einni, nú jæja.
Hér að neðan eru nokkar stórstjörnur sem vert er að fylgjast með á árinu 2014 en að mati sérfræðinga eru þetta þær tíu stjörnur sem eru með heitustu hártrendin í ár:
Ombre hár. Þetta trend virðist engan enda ætla að taka og margar stórstjörnur bera þennan lit, dökkt í rótina og ljóst í endana, eitt flottasta trendið í dag að mínu mati.
Fallegu rauðu lokkar Amy Adams er æðislegir! Rautt hár fær núna að njóta sín sem aldrei fyrr.
Ofurfyrirsætan Coco Rocha lét klippa sig stutt og litaði hárið súkkulaðibrúnt, flott klipping og sjáið hvað kinnbeinin njóta sín á henni þegar hárið er svona stutt.
Þrátt fyrir að vera nánast alltaf eins þá hefur ljósi liturinn hennar Gwyneth alltaf verið klassískur.
Katy Perry er með djúpan dökkan tón sem glansar fyrir allan peninginn, það eru þó ekki margar sem geta borið svona dökkan lit en ef þú ert ein af þeim þá mæli ég með þessum lit fyrir þig.
Súkkulaðitónninn hennar Zoe Zaldana, sem er aðeins ljósari en litur Katy Perry, hentar henni fullkomlega, flottur litur fyrir þær dömur sem eru með dökka húð.
Hungnangsliturinn hennar Jessicu Chastain er mjög fallegur en hentar þó ekki öllum, passaðu þig að velja réttan hárlit sem hentar þínum húðlit, – þessi litur er fyrir þær sem þola hlýja hártóna.
Margot Robbie sló í gegn á Golden Globes með hungangsljósu hári sínu. Örlítið rautt í endana.
Platínuljóst hár heldur áfram að slá í gegn og þessi litur er tilvalinn fyrir þær sem eru með kalda litartóna í húðinni sinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig