Þegar að ég sá Valentino vor 2011 ´lookið´ tók ég strax eftir hárinu, ótrúlega flott fléttugreiðsla en samt svo einföld…
…Greiðslan er einfaldlega tvær fastar fléttur sem eru svo settar saman í snúð neðarlega á hnakkan. Mjög flott greiðsla bæði fínt og hversdags.
Það sem mér fannst flottast voru flétturnar sjálfar, en þetta eru ekki þessar týpísku föstu fléttur heldur öfugar, sem sagt fléttaðar út á við í staðin fyrir inn á við.
Ég gerði smá vidjó af því þegar ég fékk að fléttu systur mína og sjá útkomuna. Mjög einfalt og skemmtilegt að gera. Mæli með að prófa ef þig langar í smá tilbreytingu.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=oYh6c8cwNgc&feature=channel_video_title[/youtube]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.