Það hafa eflaust margir séð myndirnar sem birtust af Lady Gaga á dögunum þar sem hún var með ljósblátt hár á höfðinu, undir höndunum…og líka ‘feik’ klobbahár á buxunum! Lady Gaga kom fram á Much Music Awards í Toronto í þessari múnderingu sem vakti mikla lukku…
…Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem að Lady Gaga skartar óvenjulegum háralit en litríkt hár er hálfpartinn orðið hennar trademark. Þegar Gaga kom fyrst fram á sjónarsviðið var hún með skjannahvítt hár en síðan þá hefur hár hennar verið í öllum regnbogans litum og meira að segja var það grátt á tímabili.
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að sjá skemmtilega háraliti Lady Gaga og hvernig hárið hefur breyst og þróast í gegnum tíðina:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.