Hair Romance er bloggsíða fyrir þær sem eru orðnar þreyttar á klassíska taglinu og vantar hugmyndir tengdar hári. Hair Romance bloggsíðunni er haldið úti af ungri ástralskri stelpu sem hreinlega elskar allt sem við kemur hári…
…Þessi unga stelpa hefur nú sett sér markmið, að gera nýja hárgreiðslu í sig og birta myndir á blogginu á hverjum degi í 30 daga. Með þessari áskorun vill hún sýna fólki mismunandi möguleika og leiðir til að breyta til á einfaldan hátt, en hárgreiðslurnar eru allar frekar einfaldar.
Það er mjög gaman að fylgjast með henni í þessari áskorun þó að hárgreiðslurnar séu mjög misjafnar að mínu mati, stundum tekst henni vel til en stundum er þetta ekkert svo spennandi.
Endilega kíkið á síðuna hennar til að fylgjast með áskorununni og lesa góð ráð um hárhirðu; Hair Romance.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.