Jonathan Josefsson varð fyrst þekktur í Gautaborg sem graffitilistamaðurinn Ollio í kringum árið 2000. Hann skar sig frá öðrum gröffurum vegna þess hvernig hann valdi verkum sínum stað, einnig var hann meðal fyrstu graffara sem opinberaði hver hann var.
Þegar Jonathan var við nám í Högskolan för Design och Konsthantverk uppgvötvaði hann að spreybrúsinn og teppavélin ættu ýmislegt sameiginlegt og í kjölfarið leyfði hann listrænni leikgleði sinni að fá útrás í teppagerð.
Jonathan hefur tekið þátt í fjölda sýninga með textílverk sín og málverk á sama tíma sem hann heldur uppteknum hætti sem graffari.
Hann er fæddur árið 1978, nam myndlist í Högskolan för Design och Konsthantverk í Gautaborg á árunum 2001-2007. og hefur haldið einkasýningar á listasafni Dalslands, Kungsbacka Konsthall menningarhúsi Luleå og í Galleri Magnus Winstrom í Gautaborg ásamt fjölda samsýninga meðal annars í Göteborgs Konsthall, Röhsska museet, Svenska institutet i Paris, Galerie Neurotitan i Berlin ogGalerie Richter & Masset i Munchen.
Sýningartímabilið er 20.september – 5.október en þessi sniðugi listamaður verður viðstaddur á opnunardeginum og spjallar við gesti og gangandi frá kl. 12:00-17:00.
Um að gera fyrir áhugafólk um hannyrðir, myndlist og graffití að láta sjá sig í Norræna húsinu og kynna sér þessi nýstárlegu verk.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.