Jæja, þú ert búin að tala við manninn í ár en skilur ekki af hverju hann er svona tregur við að gera “sambandið” opinbert .
Annaðhvort hættiru að eyða tíma þínum í manninn eða nýtur þess að sofa hjá honum þangað til herra Réttur birtist.
Því hann vill eingöngu sofa hjá þér!
- Hann sendir þér bara sms eftir 1 á nóttunni.
- Þú hefur aldrei hitt vini hans.
- Hann vill ekki að þú gistir, hann segir það ekki beint en gefur það í skyn; “Ég þarf að vakna rosalega snemma í fyrramálið”.
- Öll samtöl þróast út í eitthvað kynferðislegt.
- Hann réttir þér alltaf allar eigur þínar áður en þú ferð heiman frá honum.
- Hann verður pirraður þegar þig langar í alvöru bara að horfa á myndina.
- Þið hafið aldrei farið á alvöru stefnumót.
- Hann vill alltaf að þið splittið reikningnum fyrir heimsenda matnum.
- Hann er alltaf “upptekinn” þegar þú átt erfiðan dag og vilt spjalla.
- Það eina sem hann hefur gefið þér er víbrador eða eitthvað til að nota kynferðislegum tilgangi.
- Hann hrósar þér eingöngu fyrir útlit þitt.
- Þegar hann kemur heim til þín fer hann beint í svefnherbergið.
Þú veist það eflaust innst inni að hann mun aldrei vilja neitt meira en kynlíf. Það getur verið erfitt að sætta sig við það en trúðu mér vinkona það er mun betra að vakna og þefa af kaffinu heldur en að ganga um með vonlausan draum í maganum og enda svo særð og ringluð.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.