Leikkonan Halle Berry er ófrísk af sínu öðru barni og gengur hún með strák ef marka má slúðurpressuna vestra.
Fyrir á hún fimm ára skvísu með fyrrverandi unnusta sínum Gabriel Aubry. Leikkonan er trúlofuð leikaranum Oliver Martinez og er mikil gleði með tilvonandi nýja meðlim fjölskyldunnar.
Halle segist mjög ánægð með að hafa eignast sitt fyrsta barn eftir fertugt og hefði ekki getað hugsað sér að eignast barn þegar hún var á tvítugsaldri þar sem að henni fannst hún vera barn sjálf þegar hún var á milli tvítugs og þrítugs.
Hin tilvonandi móðir segir einnig að hún gefi miklu meira af sér á fertugsaldri heldur en hún gerði fyrir um fimmtán árum síðan, hún skilji allt mun betur núna heldur en þá enda eldri og þroskaðri.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig