Leikkonan Gwyneth Paltrow og söngvarinn Chris Martin hafa ákveðið að skilja eins og flestir slúðurfréttaáhugamenn ættu að vita…
… Færri hafa komist að því að leikkonan notar heimasíðu sína www.goop.com til að tala um tilfinningar sínar. Í færslu á síðunni segir Gwyneth að þau Chris séu afar þakklát fyrir þann stuðning sem þau hafa fengið frá vinum, fjölskyldu og aðdáendum á þessum erfiðu tímum.
Síðastliðinn þriðjudag skrifaði leikkonan á síðuna að henni þætti leitt að tilkynna að hún og Chris hefðu ákveðið að skilja en þau hafi reynt allt sem þau gátu síðastliðið ár til að vinna í hjónabandsörðugleikum sínum. Þau unnu saman að því bæði sem hjón og í einrúmi en niðurstaðan sé einfaldlega sú að þau elski hvort annað en ætli sér ekki að vera saman lengur.
Vinir þeirra segja að þegar þau séu tvö saman þá sé mikil spenna á milli þeirra en þau eiga tvö börn saman og þegar þau eru nálægt er andrúmsloftið allt annað. Þau hafi einfaldlega vaxið frá hvort öðru síðastliðin ár.
Það er alltaf erfitt þegar fólk ákveður að skilja en þau tvö eru ákveðin í því að setja börnin sín í forgang og skynja það einnig að þau eru hamingjusamari sundur heldur en saman.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig