Gwyneth Paltrow er sátt við útlit sitt og vöxt en ef hún mætti breyta einhverju við útlitið þá yrðu brjóstin fyrir valinu segir hún í viðtali við tímaritið Tatler.
Gwyneth notar brjóstahaldarastærð 34B en væri til í stærri skálar, – án þess þó að ætla að ríða á vaðið með framkvæmdina.
“Ef ég ætti að breyta einhverju við útlit mitt þá myndi ég ekki breyta neinu. Ekki vegna þess að mér finnist ég svo fullkominn, ég held bara að það sé ástæða fyrir því að ég lít svona út. Ég hefði samt ekkert á móti stærri brjóstum.”
Þó leikkonan sé sátt við útlit sitt er hún samt sannfærð um að nefið á sér sé að stækka.
“Ég er með frekar lítil augu og ég er hrædd um að nefið á mér sé að stækka. Er eiginlega “paranoid” yfir þessu. Yfirleitt sé ég frekar það sem mér mislíkar þegar ég lít í spegilinn.” – Hver kannast ekki við það?
Gwyneth, sem verður 41 árs í þessum mánuði, er byrjuð að æfa nýja tegund af jóga. Þá eru iðkendur látnir hanga niður úr loftinu og gera jógaæfingar þannig. Henni finnst æðislegt að geta hangið á hvolfi niður úr loftinu, segir að sér líði eins og leðurblöku.
Spurning hvenær slíkt jóga kemur á líkamsræktarstöðvar landsins? Mögulega aldrei, við látum hitajógað duga í bili.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.