Leikkonan Gwyneth Paltrow hefur oft verið á milli tannanna á fólki, meðal annars vegna ummæla eða ráð sem varða heilbrigðan lífstíl. Leikkonan ræddi við tímaritið Cosmopilitan um hvað hún gerir og hvað er á bannlistanum þegar kemur að fögru útliti hennar.
Gwyneth segir að henni líki alls ekki við hrukkubanann bótox. Hún segir að reyndar virki það vel fyrir sum andlit en þegar þú ert farin að sjá það á andliti viðkomandi að það er troðið af bótoxi þá missi það marks. Henni finnst eins og að fólk sé alltaf að reyna að laga eitthvað smátt og smátt en síðan fari það úr böndunum.
Gwyneth elskar sólina. Hún segir að við sem manneksjur elskum öll sólina og hvers vegna ætti hún að vera óholl fyrir þig? Að hennar mati er allt sem kemur frá náttúrunnar hendi gott fyrir þig og hún reynir að fá að minnsta kosti fimmtán mínútur á dag úti í sólinni til þess að fá D vítamín í kroppinn en notar þau auðvitað réttar varnir.
Gwyneth segir að með góðu mataræði og hreyfingu getir þú elst vel. Leikkonan notast við líkamsræktar aðferðir Tracy Anderson en hún er þekkt fyrir að koma stórstjörnum í fantaform og stjörnurnar dásama hana fyrir vikið. Gwyneth viðurkennir þó að hún elski Starbucks kaffi og þegar hún fái sér bolla þar þá verður Cappuccino fyrir valinu.
Þó svo að þessi fagra Bandaríkjamær borði hollt nánast alla daga þá viðurkennir hún samt að henni finnist ostur í Bretlandi góður og þegar hún er í Ameríku þá borðar hún bollur af ýmsu tagi og franskar með! Já viti menn?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig