Leikkonan Gwyneth Paltrow sem er á fullri ferð að kynna nýjustu kvikmynd sína “Thanks For Sharing” sagði í nýlegu viðtali að hún gæti alveg hugsað sér að deita einhvern með kynlífsfíkn!
Gwyneth segir að hún sé með mjög opinn huga, taki á móti öllum breytingum og taki öllum eins og þeir eru, sama hvað hrjáir þá. Hún sagði að ef hún myndi vita að hún væri að fara í samband með einstakling með kynlífsfíkn þá væri hún alveg til í að láta á það reyna hvort að hinn aðilinn yrði trúr henni eða ekki.
Leikkonan heldur áfram og segir að ef þú elskir þann sem þú ert með og sért tilbúinn að skuldbindast honum þá gerist eitthvað. Engin pör séu hinsvegar eins, öll pör upplifi hindranir í sínu sambandi og takist á við erfiðleika á sinn eigin hátt -enginn er eins.
Að lokum segir Gwyneth að hún væri alveg opin fyrir því að fyrirgefa framhjáhald ef maki hennar myndi halda framhjá en geti þó ekki gefið hreinskilið svar því hún hafi aldrei upplifað slíkt. Leikkonan er gift söngvaranum Chris Martin og saman eiga þau tvö börn.
Kvikmyndin “Thanks For Sharing” fjallar einmitt um kynlífsfíkla, líf þeirra og hvernig þeir komast af frá degi til dags með dyggri aðstoð vina sinna.
Kíktu á treilerinn hér fyrir neðan.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=xLSYxqUSI_U[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig