Gwyneth Paltrow er gift söngvara hljómsveitarinnar Colplay Chris Martin en hún segir að hjónaband þeirra krefjist mikillar vinnu og tillitsemi af beggja hálfu.
Gwyneth segir að það sé mjög erfitt að vera í hjónabandi, það gangi á ýmsu, þú komir alltaf til með að eiga góðar stundir, slæmar og líka hrikalegar stundir með makanum þínum.
Gwyneth segist hafa spurt pabba sinn að því einu sinni hvernig honum og mömmu hennar hafi tekist að vera gift í 33 ár og hann svaraði: “Við vildum aldrei skilja á sama tíma”. Leikkonan segir einnig að það sé mikið til í þessu hjá pabba sínum því ef að annar aðilinn er tilbúinn að halda áfram og peppar hinn upp þá sé möguleiki á því að laga það sem þarf að laga.
Leikkonan segir einnig að þau Chris séu bestu vinir, þau tali saman um heima og geima, hlægi saman og njóti þess einfaldlega að vera saman þegar þau hafa tíma til þess. Það er einnig gagnkvæmur skilningur þeirra á milli, Chris sé mjög frjór listamaður og hún líkir honum jafnvel við brjálaðan vísindamann, hún er þess vegna aldrei að hringja í hann og segja honum að koma heim á núll einni ef hann er í sköpungargírnum. Henni finnst hann gefa svo mikið fallegt af sér út í heiminn með lagasmíðum og öðru að hún vill leyfa öðrum að njóta frjósemi hans.
Það er alltaf nóg að gera hjá leikkonunni sem er með barnapíu sem getur stokkið inn hvenær sem henni hentar, Gwyneth er með marga samninga hingað og þangað og ef hún þarf að skreppa til Dubai á vegum Max Factor þá er gott að hafa góða barnapíu sem getur passað börnin þegar þess þarf.
Gwyneth segist einnig elska London en hún og börnin ferðast mikið um borgina og nota gjarnan neðanjarðarlestina til þess að flakka um borgina.
Chris er breskur og Gwyneth frá Bandaríkjunum og henni finnst það afar mikilvægt að börnin þeirra fái að njóta sín í báðum heimsálfum.
Þau fara mikið á söfn og í garða í Bretlandi en það virðist sem þau fá meiri frið fyrir ágangi papparassana í Bretlandi og það er ein af ástæðum þess að Gwyneth líkar vel í London.
Þrátt fyrir að vera heimsfræg leikkona og alltaf með nóg af verkefnum segir Gwyneth að hún sé mjög heimakær og finnist fátt betra en að eyða gæðatíma með fjölskyldunni sinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig