Leikkonan Gwyneth Paltrow og eiginmaður hennar Chris Martin hafa búið undanfarið í Los Angeles en Cris er afar óhamingjusamur í borg englanna.
Englendingurinn saknar þess að vera í kringum vini sína, fjölskyldu og sérstaklega þess að vera nálægt hljómsveitinni sinni Coldplay. Hann ákvað að gefa eftir og flytja til Los Angeles því Gwyneth sagði að það væri betra fyrir framann sinn, hún væri þannig nær öllum kvikmyndatilboðum og öðrum tilboðum sem gætu komið inn á borð til hennar. Allt fyrir ástina.
Chris er hinsvegar mjög ósáttur í Los Angeles þar sem hann virðist ekki getað farið út úr húsi án þess að hann og börnin séu mynduð í bak og fyrir og þetta áreiti þolir hann ekki.
Gwyneth hefur alltaf sagt að sér finnist æðislegt að búa í London þannig að Chris ætlar að lokka hana þangað aftur. Honum finnst hún alveg getað fylgt honum þangað þar sem tækifærin eru á hverju horni fyrir hana. Hún er stórleikona og því alveg sama hvar hún er stödd í heiminum. Hann sé hinsvegar í hljómsveit sem sé staðsett í London og þar eigi hann heima.
Frekja i Chris eða rétt hjá honum? Kannski blandar Gwyneth bara grænan djús handa Chris og málið leysist?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig