BOSS Nuit Pour Femme er fágaður nýr ilmur fyrir dömur frá BOSS Fragrances en ilmurinn var innblásin af einni af þekktustu táknmynd tískunnar – litla svarta kjólnum og því notalega sjálfstrausti sem hann gefur konum.
Samsettur úr nútímalegri blöndu kvenlegra blóma með glitrandi toppnótu er Boss Nuit Pour Femme hinn fullkomni fylgihlutur með litla svarta kjólnum.
Fyrir BOSS Black-konur, þýðir velgengni að ná að skapa fullkomið jafnvægi á öllum sviðum lífsins en að mati fyrirtækisis nær enginn að þjappa þessum eiginleikum jafn fullkomlega saman og hinn nýráðni kynnir fyrir BOSS Nuit Pour Femme, Gwyneth Paltrow.
Þessi óskarsverðlaunahafi, leikkona og hæfileikaríka söngkona lifir heilbrigðu lífi, er tískufyrirmynd, matreiðslubókarhöfundur, frumkvöðull, eiginkona og móðir. Hún er í hnotskurn ímynd hinnar duglegu og stórbrotnu nútímakonu. Full sjálfstrausts, viss um sjálfa sig og nýtur yfirmáta velgengni en hefur engu að síður hnökralausan stíl, útgeislun og fágaðan kvenleika sem gerir hana að vel heppnuðum fulltrúa fyrir BOSS Nuit Pour Femme.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=9OtlgvyiWOE[/youtube]Ilmurinn sjálfur er samsettur m.a. úr hvítri ferskju, jasmínu, sandalvið og kristalsmosa:
„Fyrir mér er, BOSS Nuit pour Femme, mjög munúðarfullt og kvenlegt ilmvatn. Það er hið fullkomna kvöld og nætur ilmvatn vegna þess að það er mjög aðlaðandi en ákaflega fágað um leið.” Gwyneth Paltrow
Líkt og ilmurinn er flaskan og kassinn utan um BOSS Nuit Pour Femme hönnuð með það í huga að líkja eftir klassískum kostum litla svarta kjólsins: glæsilegur, fágaður, klassískur og einstaklega kvenlegur.
Glasið er þungt og fallegt hannað með þeim tilgangi að gefa í skyn fágun og þokka. Mjög vel heppnaður ilmur frá BOSS sem vert er að kynna sér.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.