Ég er einlægur aðdáandi franska snyrtivörumerkisins L’Occitane sem fagnaði 40 ára afmæli sínu á síðasta ári. Nú síðast gaf ég manninum mínum það nýjasta í Cédrat línunni, guðdómlegan rakspíra. L’Homme Cologne Cédrat.
Ilmurinn er karlmannlegur – ferskur – fágaður. Alveg eins og rakspíri á að vera að mínu mati 👌🏼
Samsetning Cologne Cédrat er eftirfarandi:
Fjölskylda: Viðar -og sítrusblanda.
Yfirtónar: Sítrus frá Korsíku; cédrat, mynta og bleikur pipar.
Hjartatónar: Blöð af fjólu og engifer.
Grunntónar: Sedrusviður, moskus og amberviður.
“L’Homme Cologne Cédrat maðurinn er jákvæður, eðlislægur og hvatvís með gott innsæi. Alveg eins og geislandi ferskleiki þessa ilms. Ég elska að flýja til Miðjarðarhafsins og kanna nýjan sjóndeildarhring. Ég elska milt loftslagið og afslappað andrúmsloftið þar.” Segir Julie Massé hönnuður ilmsins. En aðaltónn spírans, sítrusávöxturinn cédrat, er frá Korsíku í Miðjarðarhafi.
Ég er virkilega ánægð með þennan rakspíra og mæli hiklaust með honum fyrir alla kærasta, unnusta og eiginmenn. Guðdómlega góður og á skilið ekkert minna en 5 stjörnur af 5. Endilega kíkið á þennan ilm frá franska undramerkinu L’Occitane!
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.