Ef þú vilt örva meltinguna, losna við bjúg og keyra upp orkuna þá er þessi vinsæli drykkur kjörin til þess. Hann er saðsamur, fullur af ofurfæðu og alveg einstaklega bragðgóður!
1 grænt epli
bútur engifer, rifinn
lúka spínat
lúka rucola
1 mangó eða 1 bolli frosið mangó
nokkrar döðlur, gott að láta liggja fyrst í vatni
hnífsoddur cayenne pipar
1 msk grænt duft(má sleppa)
1 msk grænt te (má sleppa)
klaki
eplasafi eða vatn til þynningar
Allt látið í blandara og mixað í botn. Svo geturðu drukkið hann í einum teyg eða haft á flösku yfir daginn. Mikið betra en 14 bollar af kaffi 😉
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.