Ég kíkti í bæinn um helgina, fór á opnun myndlistasýningar í Crymo Gallerí og rölti svo niður laugaveginn….
…það var pínu kalt þannig að það var mikið um fólk í leðurjökkum, pelsum og með hlýja fylgihluti.
Ég smellti nokkrum myndum af fínu fólki og flottum fötum…hér eru nokkrar vel valdar:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.