Ég skrapp í bæinn á hvítasunnukvöldi ásamt fríðum föruneyti – dansaði , fékk mér kreppu-Mojito (3 á 3000 kr á Næsta bar!) og smellti nokkrum myndum af fallegum Íslendingum.
Það voru nokkuð margir í bænum enda æææðislegt veður , vonum að veðrið haldist svona út allt sumarið!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.