Um daginn fjölluðum við um að Susan Boyle hefði eflaust tekið að sér að stílisera fyrir Catherine Zeta Jones, svo afleitur var stíllinn…
En núna er allt, allt, allt annað hljóð komið í strokkinn og við klöppum fyrir Catherine.
Hér má sjá þessa tignarlegu konu í klæðnaði við hæfi. Yndislegum minkapels, leðurleggings og Christian Loubotin skóm fyrir slatta af peningum.
Líkt og minkurinn sem hún klæðist er víst óhætt að segja að hún sé orðin rándýr.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.