Kærustuparið Goldie Hawn og Kurt Russell (61) hafa verið hamingjusöm saman í þrjátíu ár og leyndarmálið, að þeirra sögn, er að þau hafa ekki ennþá gift sig.
Goldie segir að hún sé ennþá afar ástfangin af Russell og henni líði stundum eins og ástföngnum unglingi í kringum hann þrátt fyrir að hún verði sjötug eftir þrjú ár. Leikkonan segir að samband þeirra sé ennþá sterkt og þau hafi nákvæmlega enga löngun til þess að ganga upp að altarinu.
Goldie segir einnig að þau séu bundin hvort öðru og elski hvort annað afar heitt þrátt fyrir að vera ekki gift, það þurfi ekki alltaf blaðsnepil til þess að sanna ást sína á annari manneskju.
Mörg hjónabönd og sambönd hafa farið í vaskinn í glysborginni en samband þeirra virðist alltaf blómlegt og þau afar hamingjusöm saman enda eru þrjátíu ár mjööög langur tími á Hollywood mælikvarða, og reyndar flesta aðra mælikvarða í dag.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig