Nú fer að styttast í jólin og eins og alltaf hellist yfir okkur glimmer. Jóla- og áramótafötin einkennast af gull, silfur og glimmerbombum sem við þreytumst ekki á enda ofursmart við allt jólaskrautið, flugeldana og til að lýsa upp skammdegið með smá húllumhæ.
Búðirnar eru strax orðnar troðfullar af allskonar útgáfum af glimmerbombum og leggings, það er mjög vinsælt að vera líka með palíettuútsaum á öxlunum eða í pallíettuvesti- bolero eða pallíettuleggings. Fatnaðurinn er að mestu svartur utan við gyllt og silfur skraut og hér koma nokkrar útgáfur sem mér finnast mjög skemmtilegar:
Og fyrir þær sem vilja bara halda sér við svartan plain kjól en poppa hann smá upp fyrir hátíðarnar þá eru palíettu-bolerujakkarnir tilvaldir:
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.