Það eru að koma áramót og þá er sko gaman að fara alla leið í mega-dressi; glitrandi glimmer pallíettu-bombur, grímur og himinháir hælar, allt er leyfilegt á gamlárskvöld og því meira því betra!
Það er trend núna að vera með skrautlegar spangir og hárbönd og flottar fjaðra-spangir eru málið þessi áramót.Við erum auðvitað komin á kaf í snjó og kulda svo það er eins gott að eiga feitan pels utanyfir öll herlegheitin (eða klassíska 66°N og Cintamani úlpu..) og ráðlegt að fara á kuldabomsunum milli staða með pinnahælana í töskunni.
Munum líka eftir að vera með vatnsheldan maskara þegar snjónum kyngir niður svo við verðum ekki sorglegar með tauma niður kinnarnar..
Góða skemmtun!
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.