Tískurisinn Lanvin hefur opnað nýja verslun á Madison Avenue í New York borg.
Versluninn er stórglæsileg. Fágun, glæsileiki og lúxus einkennir þessa fimm hæða, 650 fermetra verslun! Já það má t.d. finna brúðar-hæð, skó-hæð,tösku-hæð og fleira girnilegt.
Verslunin er innréttuð af smekkmanninum Alber Elbaz sem er yfirhönnuður Lanvin. Fallegur viður, svart, hvítt og glæsileg húsgögn. Þessi verslun er algjör draumur.
Ef þú ert á leiðinni til New York verður þú að kíkja í lúxusinn!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.