Hjá venjulegu fólki er sjaldan tilefni til að fara í hið allra fínasta púss en árshátíðir eru ein besta ástæðan sem við höfum til að gera það.
Ég tók saman nokkra heita kjóla, skó og fylgihluti sem geta gert þig að glæsilegustu gyðjunni á svæðinu.
Við erum flestar öruggar í vel sniðnum svörtum kjól og það eru endalausir möguleikar til að poppa hann upp t.d. með tösku eða skóm í sterkum lit, sokkabuxum, fallegri hálsfesti og eyrnalokkum.
Eins er kjóll í lit bestur við svarta fylgihluti og skó við til að leyfa kjólnum að njóta sín. Gott að muna regluna “minna er meira”.
Smelltu til að stækka
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.