.. eru ekki komnir úr tísku!
Þriðja sumarið í röð eru enn að koma á markað margar útgáfur af þessum flottu sandölum og það eru frábærar fréttir fyrir fólk eins og mig sem finnast þeir mega töff;)
Svona sandala má finna í öllum helstu skóbúðum og Topshop og Zöru á kreppu-vænu verði.
Og svo er þessi útgáfa af sandalanum með hippalegu kögri þvílíkt töff fyrir djörfu tískudrósirnar;)
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.