Í september nýliðnum héldum við Pjattrófur alveg einstaklega gott partý þar sem við gerðum vel við vinkonur okkar og lesendur.
Gjafapokar fullir af gleði ruku út, kokteilar í boði Tangueray og uppistand frá Maríu Guðmundsdtóttur hresstu partýgesti rækilega við.
Í tilefni gleðinnar ákváðum við að hafa Instagram myndakeppni þar sú sem átti flest “læk” á sinni mynd fær alveg geðveika augnskugga pallettu frá Smashbox!
Þá er það vinningshafinn sem var með flest hjörtu á sína mynd. Sú heitir Hafrún Hálfdánardóttir – alveg sérlega hress að njóta Tanqueray kokteilanna sem er eins og allir vita langbesta gin í heimi!
Til hamingju með pallettuna Hafrún!!! 🙂
Krabbastelpan Eva Rós er fædd árið 1989, á tvö börn og góðan mann. Eva er mikill áhugamaður um hverskyns gamanmál en einnig uppeldi, ferðalög, heilsu, líkamsrækt, vín, matreiðslu, veisluhöld, kokteilagerð og góða þjónustu. Mottó Evu í lífinu er einfalt: Hver er sinnar gæfu smiður