Af því það er fimmtudagur á morgun langar okkur Pjattrófum í samvinnu við TapasBarinn að bjóða 6 manna hóp í Tapas & Sangria veislu!
Hver getur valið sér fjóra tapasrétti af matseðli og svo megið þið fá eins mikið Sangria og þið viljið!! Namm namm namm…
Það er hægt að fá fjórar gerðir af Sangria, vatsmelónu, passionfruit og Fresita en Sangria er ótrúlega ferskur og ljúffengur áfengur ávaxtadrykkur sem rekur rætur sínar til Spánar. Algjört sælgæti.
Til að vera með skaltu bara finna sangria mynd á FACEBOOK hjá okkur og skila kveðju til strákanna á TapasBarnum.
Við drögum strax á morgun en boðið gildir aðeins annað kvöld. Og athugaðu… þú getur boðið FIMM VINKONUM (eða vinum) með þér!
Fimmtudagar eru sérstakir Sangria dagar á TapasBarnum svo drykkurinn verður alveg extra ljúffengur og maturinn – maður minn, namm namm namm… við mælum sérstaklega með humrinum og súkkulaðikökunni.
❤ Skál í Sangria! ❤
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.