Jæja kæru vinkonur. Þá erum við búnar að draga út nöfn í Clarins leiknum. Þetta var auðvitað hriiiikalega erfitt. Einhvernveginn langar okkur bara að ALLAR fái svona pakka en því miiiiððður er ekki til nóg.
Eftirfarandi dekurrófur geta þó brosað sínu breiðasta því þið getið boðið vinkonum ykkar í mega-dekur með æðislegum snyrtivörum frá CLARINS!!
Þær heppnu eru….
- Marta Ragnarsdóttir og hennar vinkonur
- Sunneva Jörundsdóttir og Hóló stelpurnar
- Elísabet Rafnsdóttir og kó
- Kristín María Birgisdóttir og hennar góðu vinkonur
- Íris Arnardóttir og vinkonur hennar
Þið getið nálgast vörurnar hjá heildsölunni SIGURBORG að Gylfaflöt 5 á morgun, miðvikudaginn 29 júní milli klukkan 12-16.
Einn af þessum 5 hópum fær svo aukaverðlaun en þær sem senda okkur skemmtilegustu myndina úr Clarins Spa kvöldinu fá að auki dagkrem, Wonder Perfect Maskara og lúxus prufu af nýja Colour Quench Lip Balm glossinu. Sendið myndina á pjattrofurnar (hja) pjatttrofurnar.is
En vörurnar fyrir SPA kvöldið ykkar eru eftirtaldar…
- Body Skrúbbur: Fíngerður skrúbbur fyrir líkamann. Stinnir og slípar húðina.
- Body Balm: Unaðslegt róandi líkamskrem með olíum.
- Body Polisher: Skrúbbur með salti og olíu fyrir líkamann.
- Body Lotion: Einstaklega rakagefandi líkamskrem sem gerir húðina sérstaklega mjúka, borið á frá ökkla og uppúr. Fyrir þurra og mjög þurra húð.
- Brjóstagel: Styrkjandi gel fyrir brjóstsvæði sen lyftir og stinnir- einstaklega gott eftir að konur hætta með börn á brjósti.
- Hálskrem: Nærandi háls/brjóstakrem sem sléttir og stinnir. Húðliturinn verður bjartari.
- Rakamaski: Rakamaski sem er alger rakabomba fyrir húðina. Berið þykkt lag á andlitið en sleppið augnsvæðinu. Verið með maskann á í 10-20 mín og taka svo af með volgu batni. Einnig má sofa með maskann.
- Hreinsivatn: Hreinsir og andlitsvatn í einu. Fjarlægir léttan farða án þess að nota vatn.
- Hreinsifroða: Froða sem hreinsar farða og óhreinindi. Mýkir og frískar húðina. Þvoið af með voldu vatni.
- Augnkrem: Krem sem gefur góðan raka. Sléttir stinnir og mýkir.
- Augnmaski: Rakagefandi augnmaski sem nærir húðina og lýsir upp dökkan húðlit á augnsvæði.
- Rakakrem: Einstakt rakakrem sem bindur raka í húðinni í 24 tíma. Ætlað fyrir allan aldur og allar húðtegundir.
- Brúnkukrem frá Au Courant: Einstakt brúnkukrem eins og notað er í SPRAY TAN klefum. Þetta notar Cristina Aguilera. Krem fyrir líkamann. Gefur samstundis fallegan gullinbrúnan lit. Notið hanska til að bera á líkamann og svamp til að bera á hendur.
GÓÐA SKEMMTUN!!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.