Þá hefur öllum sumargjöfum Pjattrófanna í samstarfi við Nivea Soft og Nicola De Main verið deilt út.
Við gáfum tólf slæður, fjóra boli og einn kjól ásamt kreminu en sú heppna sem fékk kjólinn heitir Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir. Kjólinn fer henni frábærlega vel og hún sagði að dætur sínar tvær myndu líka vilja nota hann. Það má því búast við að þær mæðgur skiptist á að vera flottar í sumar.
Innblásturinn fyrir mynstrið á kjólnum sótti Nicola De Main í fiðrildavængi, á þessum fiðrildum sem við sjáum svo gjarna hérlendis. Ætli pjattrófur líti þau ekki öðrum augum eftir að hafa séð svona fallegan kjól.
Svo skemmtilega vill til að Guðrún Lilja er sjálf hönnuður. Hennar fínerí má skoða hér. Meira um Nicola de Main hér.
Til hamingju Guðrún!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.