Við Pjattrófur erum eins og lesendur okkar vita, duglegar að gefa gjafir því sælla er að gefa en þiggja (eða allavega jafn sælt ;)).
Nú ætlum við að gefa heppnum lesanda flugsæti fyrir tvo til Sevilla á Spáni!!
Farið verður helgina 5-8 maí og auðvitað erum við búnar að setja saman draumadagskrá sem ætti að gera þessa daga algjörlega fullkomna.
Við höfum búið til prógramm sem samanstendur af hjólareiðartúr, flamencodansi, heimsókn í arabískt baðhús og sveitaferð þar sem hráskinku, ólífu og vínsmökkun verður efst á baugi. Í raun settum við saman upplifanir sem okkur dreymir sjálfar um í þessari yndislegu borg.
Við hugsum þetta auðvitað sem stelpuferð en eftir að við fréttum af fótboltaleik (Seville -Real Madrid) sem verður í borginni þessa sömu helgi höfum við ákveðið að leyfa þeim sem vilja blása lífi í sambandið að taka karlinn með.
Við sjáum þetta fyrir okkur sem ógleymanlega ferð fyrir vinkonur og saumaklúbba (nú eða rómantískar konur sem geta ekki skilið bóndann eftir) til einnar fallegustu borgar Evrópu.
Dagskráin verður frjáls en auðvitað mælum við eindregið með skráningu í það sem við höfum sett saman enda er hugsunin sú að ferðalangarnir fái sem mest út úr helginni.
Deildu þessari færslu með athugasemd á Facebook til að eiga möguleika á að bjóða einhverjum eða einhverri með til Sevilla og gerðu like en smelltu HÉR til að bóka þig strax í ferðina!!
(Athugaðu að þó þú bókir núna áttu samt möguleika á að fá flugmiðana endurgreidda).
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.