Og þú hélst að Durex framleiddi bara smokka? Ó nei..
Á 21. öldinni þurfa menn að standa sig á öllum sviðum og auðvitað þarf að gera kynlífið skemmtilegt og betra líka, (ekki nóg að framleiða bara getnaðarverjandi gúmmí þó gott sé).
Í æsandi gjafakörfu frá Durex, sem verður dregin út á Valentínusardag, kennir ýmissa grasa…
Síðustu misserin hefur Bellan séð allskonar forvitnilegar nýjungar frá Durex, meðal annars netta titrara og fjölbreyttar gerðir sleipiefna en Durex Embrace þykir mér sérlega sniðugt fyrirbæri!
Durex Embrace er einskonar 2 fyrir 1 nýjung frá Durex – tvö unaðsgel saman í pakka fyrir þig OG hann!
Í bleiku túpunni er silkimjúkt gel sem framkallar seiðandi hitatilfinningu en í fjólubláu túpunni er örvandi unaðsgel sem framkallar kitlandi tilfinningu.
Það er frábærlega spennandi að nota þau í sitthvoru lagi eða blanda þeim saman fyrir eina magnaða upplifun! Sjáðu hér í þessu myndbandi…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=6arHkT8iEow[/youtube]
Að nota sleipiefni getur bætt kryddi í kynlífið og er í raun jafn nauðsynlegt með smokkinum eins og smjör ofan á brauð en þú vilt líka nota sleipiefnið þó enginn sé smokkurinn því í raun gerir það þér auðveldara að fá fullnægingu og njóta kynlífsins.
Það er líka hægt að gera tilraunir með mismunandi brögð og skynjun þar til þú finnur það sem hentar þér best, í raun veltur gleðistigið bara á því hvað þú ert opin undir sænginni…
Durex Embrace er sætt leikfang til að hafa með í svefnherberginu á valentínusardaginn eða bara hvaða dag sem er enda eru allir dagar ársins ástardagar hjá Durex.
Í spennandi leikfanga gjafakörfu frá Durex, sem verður dregin út á Valentínusardag kennir ýmissa grasa og allar ófeimnar rófur ættu að kanna þetta betur…
Farðu inn á Facebook síðu Durex og taktu þátt í leiknum!
Þú og þinn gætuð unnið gjafakörfu frá Durex sem inniheldur meðal annars Durex Embrace og sitthvað fleira sem gerir Valentínusardaginn ykkar aðeins syndsamlegri – og það eru auðvitað bara góðar syndir.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.