Givenchy sendi nýlega frá sér nýja karlalínu og er hún mjög svöl…
Hvít töffarajakkaföt eru áberandi, ásamt rauðum og gylltum lit, köflóttu og Aldadín buxum. Lambhúsettur sáust einnig á pallinum.. uuu ha? Ég er ekki alveg að fíla það trend en dæmi hver fyrir sig.
Línan í heild er mjög sportleg og töffaraleg. Henni er lýst sem ‘elegant street couture’ sem útleggst: Virðulegur hátísku-götufatnaður á góðri íslensku.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.