Sjónvarpskonan Giuliana Rancic mætti á viðburð á vegum sjónvarpstöðvarinnar E! á dögunum og það verður að segjast að daman er orðin ansi horuð.
Giuliana hefur aldrei verið þekkt fyrir það að vera með mikið hold utan á sér og var henni meðal annars ráðlagt af læknum að fitna til að auka möguleika sína á því að verða ólétt. Giuliana sagði þá að hún gæti það ekki vegna vinnunnar en E! fær kjóla frá hönnuðum sem eru í pínu pínu ponsu stærðum og til að klæðast þeim í útsendingu verður þú að passa í þá! Já útlitspressan er allsstaðar.
Giuliana og Bill urðu foreldrar í fyrsta sinn í fyrra og áður en þau eignðust Duke litla þá var meira en nóg að gera hjá þeim í vinnu og ferðalögum en þau búa bæði í Los Angeles og Chicago. Giuliana hefur sagt það áður að hún elski það að vera mamma og að hann sé það besta sem hefur komið fyrir hana.
Hugsanlega eru vinnan, það að vera mamma og mikil ferðalög farin að taka sinn toll á heilsu Giuliönu og vonandi kemur hún til með að braggast vel því það verður að segjast að hún er orðin óskaplega grönn.
Margar konur eiga erfitt með að bæta á sig kílóum og glíma við það frekar en að fitna, þekkir þú einhverja þannig eða kannast þú sjálf við þann vanda? Ræðum málið á Facebook.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig