Giuliana og Bill Rancic eignuðust son fyrir sjö mánuðum síðan en Giuliana vill að Duke eignist systkini og vonar að heppnin verði með þeim.
Giuliana og Bill lentu í miklum erfiðleikum með það að eignast börn og enduðu með því að fá staðgöngumóðir til að ganga með barnið fyrir þau.
Bill og Giuliana gera allt til þess að líf þeirra gangi eins og vell en þau eru afar upptekin í sínum störfum. Bill hefur meira að segja gengið svo langt að mæta í tíma sem kallast Mamma og ÉG- á meðan Giuliana þarf að sinna vinnunni sinni.
Bill drekkur ekki kaffi en lagar kaffi handa Giuliönu sinni á hverjum morgni. Giuliana segir að pabba hans hafi gert það sama fyrir konuna sína á hverjum degi og honum fannst það afar rómantískt og ákvað því að gera það sama fyrir eiginkonu sína.
Giuliana segir að þegar hún kynntist Bill þá hafi það verið ást við fyrstu sýn, hún segir að það hafi verið eitthvað við hann sem heillaði hana um leið og hún sá hann í eigin persónu.
Það er greinilegt að rómantíkin og hamingjan er í loftinu hjá Giuliönu og Bill en hér talar Giuliana um að hjónabandið þeirra sé alltaf í fyrsta sæti.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig